Snillingur með meiru :)

snillingar blogga og ég er einn þeirra, tími til kominn ..."Oft dregur bóndinn dilk á eftir sér"

sunnudagur, júlí 30, 2006

menn eru bara latir í dag...þyrftu helst að fara í göngutúr til að vakna almennilega til lífsins...gærkvöldið var mjög skemmtilegt og bara vel heppnað bryggjuball hjá þeim grundfirðingum þrátt fyrir að vera grundfirðingar ;-)..ég fór með guðrúnu og möggu og kom seint heim allavega miðað við útivistartíma guðrúnar sem rann út á miðnæti..við vorum þarna 5 starfsmenn á leikskólanum en ég hitti þó aldrei kristínu og ingjibjörgu jöru enda ekki skrýtið þar sem fjöldinn var mikill..gaman að hitta grétu og alla hina enda kemst maður alltaf af því að maður er alltof latur að hitta fólk.. sem er skammarlegt..kannski ágætt miðsumarheit að hitta fólkið oftar og gera eitthvað skemmtilegt..sófinn og sjónvarpið geta alltaf beðið betri tíma..hvað segið þið um það...fleiri bíoferðir, gönguferðir, kaffihúsaferðir, keiluferðir..hverjir eru game??..enginn??

laugardagur, júlí 29, 2006

sumarið er að verða búið!!!

Ákvað að blogga í snatri þar sem edda er farin að rífa hár sitt yfir bloggleysi mínu...ekki gott að missa hárið á unga aldri... þessi færsla verður þó gerð á hlaupum því að ég er að passa börn systur minnar og bjarni þormar sem er 7 mánaða er iðinn við að rústa herbergi 2 ára systur sinnar sem lætur slíkt nú ekki viðgangast. Annars er lítið að frétta..sumrinu er ég búin að eyða að mestu leyti í vinnunni og í hreyfingu og fyrir vestan um helgar.. það er alveg ólíkt að vinna á leikskóla á sumrin eða lokuð inni á skrifstofu fyrir framan tölvu.. ég verð að játa að ég kýs frekar leikskólann, gott að geta verið úti og ekki er það verra að það er frábært fólk sem ég er að vinna með..myndi ekki skipta þótt mér væri boðið það..reyndar var mér boðið framtíðarstarf hér fyrir vestan en ég get ekki þegið það eins og stendur þar sem ég ætla að klára námið og halda áfram að vinna á leikskólanum með...fórum út í viðey í gær með börnin á leikskólanum og það var nú bara frekar gaman..í dag ætla ég hinsvegar að skella mér í grundarfjörð þar sem þar er á góðri stund og kíkja síðan á bryggjuballið í kvöld, annars er það kannski helst að frétta að ranní og brandur eru að flytja burt af skaganum. þau eru að fara til súðavíkur þar sem ranní er að fara að kenna í grunnskólanum og brandur fer á sjóinn, þótt að þetta sé gaman fyrir þau þá ætla ég að vera svo frek að vona að þau verði samt ekki alltof lengi þarna og komi fljótlega aftur þar sem verður styttra að kíkja til þeirra. í vikunni fer ég í sumarbústað og hitti siggu, ómar og silvíu fyrir austan og næsta færsla verður væntanlega um það ferðalag en júlla mín elsku hjartans dúlla...til hamingju með afmælið

þriðjudagur, júlí 11, 2006

Júlí

sæl öll sömul...hef lítið bloggað og sé að flestir eru hættir að kíkja á þessa síðu þar sem lítið fer þar fram af ritstörfum...en er þó enn á lífi og uni hag mínum bara býsna vel enda sumar úti og hver nennir þá að liggja í tölvunni? En til hamingju pálína með íbúðina og guðrún með hjólið..þetta finnst mér alveg meiriháttar...til lukku!!!!