Snillingur með meiru :)

snillingar blogga og ég er einn þeirra, tími til kominn ..."Oft dregur bóndinn dilk á eftir sér"

miðvikudagur, maí 31, 2006

sæl verið þið...hef ekki bloggað lengi núna og tími kominn til að gera eitthvað í því núna.
Ég er búin að vera viku fyrir vestan í sauðburði hjá möggu frænku..það var nú ekki mikið að gera verð ég að segja því að það var eins og rollurnar væru með tappa í æðri endanum og ekkert lamb kom út og það báru ekki nema ca. 3 á sólarhring þannig að þetta var orðið frekar leiðigjarnt..miklu betra þegar þetta gengur með hraða fyrir sig...en í staðinn gat ég verið meira með önnu systur og co. sem var bara nokkuð skemmtilegt enda anna einn af mínum betri helmingum ef svo má segja.
Ég var að koma úr útskriftarferð með leikskólanum og við fórum suður með sjó að Flankastöðum sem eru rétt við jaðar sandgerðis..þar vorum við heilan dag í rigningu og smá golu (að íslenskum mælikvarða), börnin urðu strax rennandi blaut og vildu bara vera inni en ég plataði þó 4 stelpur til að rölta með mér inn í sandgerði þar sem við heimsóttum gústa frænda minn en það var bara nokkuð stuð...annars er bara allt gott að frétta nema að það er tómlegt að hafa ekki lísu í vinnunni..vonandi gengur þér vel lísa mín að grafa upp leifar þræla og fornmanna!!!
Og stóru fréttirnar eru þær að Júlla kemur frá kaliforníu á morgun þar sem hún er búin að vera í vetur að þjóðfræðingast..
annars nóg í bili
heido

föstudagur, maí 26, 2006

smá kveðja úr hólminum

jæja, núna er sauðburður í fullum gangi og eru fjórar af mínum kindum búnar að bera og eiga allar tvö lömb...hinsvegar gengur burðurinn afar hægt og það eru um það bil tvær til fjórar sem að bera á dag, en slíkt þykir afar lítið...þar sem ég sit hér hjá systur minni verður þessi færsla frekar stutt, en vert er þó að geta þess ein einkunn er komin..fékk 9 í gerð námsskrár sem dugar ekki til að toga meðaleinkunn upp í 9, heldur er hún í 8,75 en enn vantar eina einkunn í kennslufræðinni og eina í námsráðgjöfinni

fimmtudagur, maí 18, 2006

hún gerir það greinilega...hjálp, edda eða guðrún eða einhver...hvernig fæ ég bloggið til að fara upp aftur á sinn stað????

í dag er silvía nótt að keppa.....áfram silvía...ég er bara að tékka á því hvernig þessa færsla verður..hvort hún hverfur niður eins og síðast eða hvað

þriðjudagur, maí 16, 2006

ég var búin að blogga heila helling en veit ekki hvert það fór...hmm skrýtið

sæl verið þið...
langt síðan ég hef bloggað en ég er þó enn á lífi..prófin eru búin og núna bíð ég bara eftir einkunum, ég veit ekki hvernig mér gekk en ég vona þó að ég hafi náð..nenni ekki að fara að taka þetta allt aftur, slíkt er sóun á peningum og orku.
Ég sit núna í odda og það eru sko engar smá sprengingar..nötrar bókstaflega allt og skelfur og því ekki furða að prófin hafi verið færð..ég var í prófi í VRII og var heillengi að finna stofuna mína og þar var reyndar ekkert minni hávaði því að einhverjir krakkar lágu á gluggunum og gláptu inn og sá sem sat yfir okkur var ekkert að spá í því..enda bara gamall maður sem að var að auka lífeyrinn sinn.
Ég vildi að ég væri búin með meira í náms- og starfsráðgjöfinni því að það er verið að auglýsa helling, meira að segja í Hagaskóla..það væri reyndar dálítið gaman að sækja um það..en ég ætla að klára meira í náminu áður en ég fer að sækja um og skoða þá bara auglýsingar næsta eða þarnæsta ár.
Í gær kláraðist beðmál í borginni og ég er staðráðin í því að safna þessum þáttum..þeir eru frekar skemmtilegir..ég ætla líka að fara að safna vinum....bara ábendingar fyrir þá sem þurfa að fara að huga að útskriftargjöfum...
Um helgina fer ég vestur í sauðburð og verð þar í heila viku...ég held að það verði bara nokkuð skemmtilegt og gaman að geta hitt alla þar..annars verð ég að vinna á Hagaborg í allt sumar og fer síðan í sumarfrí í byrjun ágúst en ég fékk sumarbústað á Eiðum í gegnum stéttarfélagið mitt og þar kem ég til með að verða í heila viku..ég vona bara að sá bústaður verði ekki eins framandlegur og sá sem við fórum í síðasta sumar í Hænuvík..vorum í gamla húsinu sem að sést á myndinni ;-)
Nýjasta nýtt er að Hrísar, gamla sveitabýlið mitt, er til sölu, smellið á hrísa og sjáið myndir af stórbýlinu..það er fyndna er að sá sem keypti af okkur keypti 17oo hektara á 40 millur en er núna að selja 300 hektara á 55 millur..á einhver pening handa mér svo að ég geti keypt???
Mér leiðist Woody Allen...hver fann hann eiginlega upp?? sá sami hefur varla grætt jafn mikið og sá sem fann upp límið eða post it..þvílík uppfinning...og hverjum datt í hug að fara að skemma sunnudagskvöldin á skjá einum með myndum eftir þennan mann og það sem verra er..hann leikur sjálfur í þeim öllum..kannski einu hlutverkin sem að hann hefur fengið um ævina!!!
En nóg bull í bili..segi bara áfram silvía nótt...ég vona að hún vinni þetta.....
sjáumst...................