Einu sinni voru sumir bara nokkuð sætir, getið þið fundið mig? kíkjið á þessa mynd.
Snillingur með meiru :)
snillingar blogga og ég er einn þeirra, tími til kominn ..."Oft dregur bóndinn dilk á eftir sér"
þriðjudagur, janúar 31, 2006
fimmtudagur, janúar 26, 2006
Tækni
Ég held að tæknin sé að fara fram úr mér, núna sit ég við tölvuna og skrifa þetta blogg og hvað haldið þið að ég sé að gera á meðan, Jú..datta damm, ég er að hlusta á fyrirlestur um fjarnám og dreifnám frá kennaranum mínum sem er staddur í Háskólanum í Reykjavík, fékk nýjan kennara í upplýsingatækninni um áramótin og hún les inn á hljóðglærur sem við þurfum að hlusta á, einstaklega áhugavert eða þannig. Annars sé ég fram á það að þessi önn á eftir að verða brjáluð varðandi verkefnavinnu, jáhú, hinsvegar eru aðalfréttirnar þær að gömlu hjónin, foreldrar mínir, eru að fara í mánuð á kanarí, ég væri nú bara til í það að fara með þeim.....best að láta sig dreyma....
föstudagur, janúar 20, 2006
skammir!!!
Ég er búin að fá skammir frá nokkrum aðilum fyrir að hafa gleymt að nefna þá í annálnum mínum sem að ég gerði hérna eftir áramótin,, ég biðst velvirðingar á þessu og tek það fram að þeir atburðir sem ekki var minnst á voru samt skemmtilegir og minnistæðir t.d. ýmis partý og fermingarveislur!!! Hinsvegar er lítið af mér að frétta, skólinn er byrjaður og púsl kennslufræði og námsráðgjafar er í fullum gangi, spurning er hvað ég tek margar einingar í námsráðgjöf þetta árið, 5 eða 8? en ég er með 10 einingar í kennslufræði og er að vinna líka, hvað haldið þið að ég eigi að taka mikið? Klukkan er þrjú og ég er búin í skólanum og veit varla hvað ég á af mér að gera en er að hugsa um að fara í kringluna og reyna að finna sængurgjöf áður en ég fer í leikfimi.
mánudagur, janúar 16, 2006
Sæl verið þið..núna er einn einstaklingurinn enn kominn í fjölskylduna því að Magga systir og Agnar eignuðust stelpu á síðasta fimmtudag nánar tiltekið 12 janúar...hún er bara nokkuð sæt og hafa þær mæðgur það gott..aðrar fréttir eru þær að hún Hulla er farin að blogga og getið þið núna farið að fylgjast með lífinu á Kristnibrautinni hahæ!
þriðjudagur, janúar 10, 2006
Nokkur orð um konur og karlmenn
1.HVERS VEGNA ERU KARLMENN GÁFAÐARI MEÐAN ÞEIR HAFA MÖK?(vegna þess að þeir eru tengdir við snilling!)
2.HVERS VEGNA BLIKKA KONUR EKKI AUGUNUM MEÐAN ÞÆR HAFA MÖK?(þær hafa einfaldlega ekki tíma!)
3.HVERS VEGNA ÞARF MILLJÓNIR SÆÐISFRUMA TIL AÐ FRJÓVGA EGG?(þær stoppa ekki til að spyrja vegar)
4.HVERS VEGNA HRJÓTA KARLMENN ÞEGAR ÞEIR LIGGJA Á BAKINU?(pungurinn fellur yfir rassgatið og stöðvar gegnumtrekkinn)Þið eruð farnar að brosa núna stelpur, er það ekki? ;o) 5.HVERS VEGNA FENGU KARLMENN STÆRRI HEILA EN HUNDAR?annars væru þeir riðlandi á fótleggjum kvenna í kokteilboðum)
6.HVERS VEGNA SKAPAÐI GUÐ MANNINN Á UNDAN KONUNNI?(þú þarft jú gróft uppkast áður en þú gerir lokaútgáfuna)
7.HVE MARGA KARLMENN ÞARF TIL AÐ SETJA KLÓSETTSETUNA NIÐUR?(hmm, veit ekki.....það hefur ekki gerst ennþá)
Einn góður í lokin...
8.HVERS VEGNA SETTI GUÐ KARLMANNINN Á JÖRÐINA?(vegna þess að titrari slær ekki garðinn)
2.HVERS VEGNA BLIKKA KONUR EKKI AUGUNUM MEÐAN ÞÆR HAFA MÖK?(þær hafa einfaldlega ekki tíma!)
3.HVERS VEGNA ÞARF MILLJÓNIR SÆÐISFRUMA TIL AÐ FRJÓVGA EGG?(þær stoppa ekki til að spyrja vegar)
4.HVERS VEGNA HRJÓTA KARLMENN ÞEGAR ÞEIR LIGGJA Á BAKINU?(pungurinn fellur yfir rassgatið og stöðvar gegnumtrekkinn)Þið eruð farnar að brosa núna stelpur, er það ekki? ;o) 5.HVERS VEGNA FENGU KARLMENN STÆRRI HEILA EN HUNDAR?annars væru þeir riðlandi á fótleggjum kvenna í kokteilboðum)
6.HVERS VEGNA SKAPAÐI GUÐ MANNINN Á UNDAN KONUNNI?(þú þarft jú gróft uppkast áður en þú gerir lokaútgáfuna)
7.HVE MARGA KARLMENN ÞARF TIL AÐ SETJA KLÓSETTSETUNA NIÐUR?(hmm, veit ekki.....það hefur ekki gerst ennþá)
Einn góður í lokin...
8.HVERS VEGNA SETTI GUÐ KARLMANNINN Á JÖRÐINA?(vegna þess að titrari slær ekki garðinn)
laugardagur, janúar 07, 2006
Gleðilegt árið!!
Heil og sæl öll sömul og ég vona að árið hafi heilsað ykkur með gleðibrag eða þá einhverjum brag hafi gleðin ekki verið fyrir hendi..það er víst alltaf siður að líta yfir farinn veg við tímamót og því við hæfi að gera það snöggvast! Janúar=nýtt ár heilsaði með brjáluðum snjó og vitlausu veðri sem að þýddi það að ég þurfti að moka hann rauð upp í 3 klukkutíma að meðtöldum vegi fyrir hann til að komast út á veg. Moksturinn tók á og á eflaust eftir að verða mér mjög minnistæður um komandi tíð en ég naut þó dyggar aðstoðar Guðrúnar frænku og seinna meir Önnu systur og pabba gamla sem að ég skammaði þó í botn fyrir vikið þar sem hann ruddi öllu fyrir aftur með traktornum. Reyndar voru skaflar líka inni í rauð þar sem vélarhlífin var full af snjó enda var þetta veður í lagi. Þegar ég kom í bæinn tók við vinna og skóli sem að fólst í brjálaðir verkefnavinnu út allann janúar. Bjössi fændi varð 3 þriggja ára og haldin var stór afmælisveisla með frænkum og öllu tilheyrandi. Febrúar var mánuður æfingakennslu með einstakri taugatrekkelsi einkum vegna þess að mynda varð herleigheitin fyrir kennarann þannig að hann gæti fylgst með því hvernig við stæðum okkur. Öskudagur var líka í þessum mánuði og þá var ég frú rúsla og fór þannig í háskólann og þótti mörgum það mikið til eftirtektar (skrýtið lið). Í mars fór ég meðal annars á árshátíð með kennurum Kvennaskólans og Aleksöndru og skemmtum við okkur hið besta uppi í skiðaskála. í þessum mánuði var ég mikið fyrir vestan að pakka niður dótinu mínu því að fyrir séð var að mamma og pabbi myndu selja jörðina og að eini tíminn sem að ég hefði til að flytja allt mitt hafurtask var í páskafríinu þannig að það frí fór í að keyra á rauð allt dótið til Reykjavíkur þar sem það rúmaðist á einhvern hátt ágætlega í minni litlu íbúð. í apríl átti ég afmæli og varð 31 árs gömul (jahérna) og embla varð 2 ára. Apríl mánuður var brjálaður mánuður í skólanum því að allt var á endasprettinum til að ljúka verkefnum. í þessum mánuði tók ég einnig kindurnar mínar og anna systir líka og við fluttum með þær búflutningum, anna með sínar í hólminn en ég með mínar að næsta bæ.´i endamánaðrins fæddist anita sif þannig að embla var búin að fá systur og rannveig og brandur´aðra dóttur. mai kláraði ég prófin og vann hálfan mánuð á leikskólanum en fór þá í sumarfrí. mai eyddi ég síðan við sauðburð hjá kindunum mínum hjá frænku minni. þennan mánuð fæddist Gerður Rós og fékk þá Ármann Þór systur en Dísa og Óli eignuðust dóttur. Í Júní byrjaði ég að vinna á Árnastofnun og fannst það mjög gaman. ég var þennan mánuð ýmist í bænum að vinna eða fyrir vestan að reka út úr túninu eða að gera eitthvað annað. Það sama var úpp á teningunum í júlí en þá fór ég líka í ferðalag með stelpunum til hennar Júllu. í ágúst var ég ´búin að vinna af mér vinnuna á árnastofnun þannig að ég var fyrir vestan í hálfnan mánuð að passa Halldóru Margréti og það var æðistlegt. ég fór einnig í ferðalag með henni og foreldrum hennar um vestfirði. í ágúst vann ég líka aðeins á safninu heima en fór síðan í seinnipart ágúst suður til að vinna á leikskólanum, sumarfríið þar var búið. September var síðan mánuður gangna og skóla þannig að ég reyndi að samræma vinnuna við þetta allt saman eins og best lét. í október var brjálað að gera í skólanum og anna systir kom líka suður til að fæða barn þannig að ég var komin á fæðingarvaktina til að taka Halldóru þegar að því yrði. Bjarni Þormar fæddist þó ekki fyrr en í nóvember og lét því bíða eftir sér guttinn sá en nóvember fór í að klára sem flest verkefni í skólanum á engum tíma. Desember var síðan prófamánuðurinn mikli en hann endaði síðan á miklum flugeldum á gamlárskvöld
lifið heil
lifið heil